Veit einhver um áreiðanæegan aðila sem leigir út karaoke-græjur fyrir einkasamkvæmi?? 🎵🗣️🎤
Mánudagspirringur vikunnar er fólk sem heldur ennþá að allt fólk sem það þekkir sé á Facebook.
Kv. Gellan sem var að panta sér flugmiða á óþarflega háu verði því hún var ekki látin vita að það væri komin dagsetning á stórafmælispartíið en opnaði FB fyrir tilviljun 🙄😑
Bara óformleg forvitni sem þýðandi; ef það er 'óþýðanlegur' brandari í þætti/mynd, hvort viljið þið frekar að hann sé þýddur beint (sem er kannski ekki fyndið á íslensku) eða að það sé annars konar brandari í þýðingunni sem passar í samhengið (sem þýðandinn býr sjálfur til)?
Rentaparty.is eða Stemning.is?
Anyone? 🤔
Silo. Geggjaðir þættir en það kippir mér pínu út úr sögunni þegar bresku leikararnir geta ekki talað með almennilegum amerískum hreim. Það ættu ÖLL þarna inni að vera með sama hreiminn 🤷🏼♀️
Mig vantar akademíska aðstoð; er til íslenskt orð yfir að vera 'fellow' við háskóla?? 🤔
Allir dagar sem færa nýtt spil inn á heimilið eru góðir dagar. Í dag voru þau þrjú svo þessi var extra góður!!!
(Það koma gestir á morgun sem eru ekki spilanördar svo við vildum eiga eitthvað 'almennt' til að bjóða þeim upp á)